Á vef Bændasamtaka Íslands hefur verið auglýst að opnað hafi verið fyrir umsóknir um jarðræktarstyrki á Bændatorginu. Umsækjandi þarf að vera skráður fyrir búnaðargjaldsskyldri framleiðslu til að hljóta styrk. Sækja þarf um fyrir 10. september 2013.

Á heimasíðu BÍ má finna frekari upplýsingar, sem dæmi eyðublað til að sækja um á pappírsformi fyrir þá sem það kjósa sem og reglur um framlög til jarðræktar og hreinsunar affallsskurða en þar er kveðið á um ráðstöfun fjármagns úr jarðræktarsjóði.
Sjá nánar: Frétt á vef Bændasamtaka Íslands