Á morgun, miðvikudaginn 26. febrúar 2014, verður lokað fyrir heitt vatn í hitaveitunni í Aðaldal og Kinn, að Hafralækjatorfunni undanskilinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Húsavíkur
Verið er að tengja stofnlögn við nýtt dæluhús veitunnar við Strút á Hveravöllum. Lokað verður fyrir vatnið um klukkan 13:00 og verður hleypt aftur á eins fljótt og kostur er.