
Kynningafundur verður haldinn fyrir íbúa um breytt fyrirkomulag sorphirðu í Þingeyjarsveit sem tekið verður upp á næsta ári. Á fundinum munu fulltrúar frá Gámaþjónustu Norðurlands segja frá innleiðingu á nýju flokkunar- og endurvinnslukerfi og svara fyrirspurnum.
Upplýsingabæklingur er nú þegar aðgengilegur á heimasíðu sveitarfélagsins um úrgangsmál og endurvinnslu. Bæklingurinn verður einnig sendur út til allra íbúa.
Haldnir verða tveir fundir á eftirfarandi stöðum:
Félagsheimilinu Ýdölum, þriðjudaginn 1. desember kl. 20:00
Félagsheimilinu Ljósvetningabúð, miðvikudaginn 2. desember kl. 20:00
Íbúar eru eindregið hvattir til að mæta, fá svör við fyrirspurnum og hafa tækifæri á að koma sínum skoðunum á framfæri.
Sveitarstjóri
