
Kynningafundir verða haldnir fyrir íbúa um breytt fyrirkomulag sorphirðu í Þingeyjarsveit sem tekið verður upp á þessu ári. Á fundinum mun sveitarstjóri ásamt fulltrúa frá Gámaþjónustu Norðurlands segja frá innleiðingu á nýju flokkunar- og endurvinnslukerfi og svara fyrirspurnum.
Upplýsingabæklingur er nú þegar aðgengilegur á heimasíðu sveitarfélagsins um úrgangsmál og endurvinnslu. Bæklingurinn hefur einnig verið sendur út til allra íbúa.
Fundirnir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:
Félagsheimilinu Ýdölum, þriðjudaginn 19. janúar kl. 20:00
Félagsheimilinu Breiðumýri 20. janúar kl. 20:00
Íbúar eru eindregið hvattir til að mæta, fá svör við fyrirspurnum og hafa tækifæri á að koma sínum skoðunum á framfæri.
