Haustgleði grunnskóla – og tónlistardeildar Þingeyjarskóla verður haldin í Ýdölum föstudagskvöldið 8. nóvember kl. 20:00.
Sýnt verður leikritið Blái hnötturinn, sem er leikrit með söngvum og byggt á bókinni Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, með tónlist eftir Kristjönu Stefánsdóttur.
Að leiksýningu lokinni verður stiginn dans.
Miðaverð: 1500 krónur fyrir fullorðna og 500 krónur fyrir börn á grunnskólaaldri. Frítt fyrir börn á leikskólaaldri og grunnskólanemendur Þingeyjarskóla. Athugið að ekki er hægt að greiða með korti.
Sjoppa á staðnum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla.