Dagana 20.júní – 12. júlí er hlaupið Friðarhlaup um allt Ísland. Þá mun 16 manna alþjóðlegur hópur hlaupara bera logandi Friðarkyndil á milli byggða til að gefa öllum landsmönnum tækifæri á að taka þátt í viðburði sem hefur að leiðarljósi hugsjónir sáttar og samlyndis. Hlauparar í Friðarhlaupinu hlupu um Þingeyjarsýslu í dag og hlupu ma. einn hring á íþróttavellinum á Laugum ásamt nokkrum hlaupurum úr Reykjadal. Síðan var trjáplöntu plantað við Lauga í tilefni af hlaupinu.

Mikil áhersla er lögð á þátttöku barna og ungmenna, sem er skipulögð í samstarfi við íþrótta- og ungmennahreyfingar á hverjum stað.
Friðarhlaupið, eða Sri Chinmoy Oneness-Home Peace Run, eins og það nefnist á ensku, er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem fer fram í öllum heimsálfum ár hvert.
Hlaupið var stofnað árið 1987 og er kennt við indverska friðarfrömuðinn Sri Chinmoy (1931-2007) sem m.a. opnaði íslenska Friðarhlaupið árið 1989.

Þetta verður í 20. sinn sem hlaupið er á Íslandi. Hlaupið verður í sveitarfélögum um allt land og plantað verður friðartrjám um allt land meðfram hlaupinu.