Efnt verður til föstugöngu í Laufásprestakalli á föstudaginn langa 14. apríl. Gengið verður frá Végeirsstöðum í Fnjóskadal kl. 11.00 (16km), frá Svalbarðskirkju kl. 11.00 (16km) og frá Grenivíkurkirkju (9km) kl. 12.00 í Laufás. Mikilvægt að vera í góðum skóm og taka með sér vatn!
Í Gestastofu/Þjónustuhúsi í Laufási verður boðið upp á súpu og drykki gegn vægu gjaldi. Dagskrá í tali og tónum verður í Laufáskirkju kl. 14.30 í umsjá Petru Bjarkar Pálsdóttur og Þórs Sigurðssonar.
Aðgangseyrir enginn. Björgunarsveitir í prestakallinu vakta gönguna.
Verið öll velkomin og gangi okkur vel!