Vorgleði grunnskóla- og tónlistarskóladeildar Þingeyjarskóla verður haldin að Ýdölum fimmtudaginn 17. mars og hefst klukkan 20:00. Sýnd verða verkin Konan í skó í umsjón 1. bekkjar og Ævintýri Bangsímons í umsjón miðstigs. Að lokinni sýningu verða kaffiveitingar og síðan dansað fram eftir kvöldi.

Miðaverð 2000 krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir börn á skólaldri.
Frítt fyrir börn á leikskólaaldri og nemendur Þingeyjarskóla.
ATH.! Ekki er hægt að greiða með korti.
Allir hjartanlega velkomnir. Nemendur og starfsfólk Þingeyjarskóla.