Á fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar í gær 29.08.2019 tilkynnti oddviti að Hanna Jóna Stefánsdóttir, fulltrúi Ð lista myndi láta af störfum sem sveitarstjórnarfulltrúi frá og með 1. september n.k. vegna brottflutnings úr sveitarfélaginu. Í Hönnu Jónu stað tekur til starfa í sveitarstjórn fyrsti varamaður fulltrúa Ð lista, Sigurbjörn Árni Arngrímsson. Frá þessu segir á vef Þingeyjarsveitar.

Á fundinum þakkaði sveitarstjórn Hönnu Jónu fyrir gott samstarf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi um leið og Sigurbjörn Árni var boðinn velkominn til starfa sem aðalfulltrúi í sveitarstjórn.
Á fundinum voru einnig gerðar eftirfarandi breytingar á nefndaskipan. Í Félags- og menningarmálanefnd tekur til starfa Sigríður Hlynur H. Snæbjörnsson formaður í stað Hönnu Jónu Stefánsdóttur. Í stað Jóhönnu Sifjar Sigþórsdóttur, sem hefur setið sem sem fyrsti varamaður og er flutt úr sveitarfélaginu, tekur til starfa Jóna Björg Hlöðversdóttir sem varamaður.
Í Fræðslunefnd tekur til starfa Hjördís Stefánsdóttir sem aðalmaður í stað Hönnu Jónu Stefánsdóttur. Sæti Hjördísar sem varamaður tekur Sigurlaug Svavarsdóttir.