Þingeyjarsveit auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns fasteigna og framkvæmda hjá sveitarfélaginu.
Um er að ræða fjölþætt starf sem snýr að umsjón með fasteignum, ýmsum tækjum- og búnaði, snjómokstri, vinnuskóla, ýmsum verkefnum og tímabundnum framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Færni í samskiptum og samstarfi
· Iðnmenntun sem nýtist í starfi
· Góð skipulagshæfni og tölvukunnátta
· Frumkvæðni og sjálfstæði í starfi
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 464 3322 og 862 0025.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí.
Skriflegar umsóknir berist skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna 650 Laugar eða á netfangið: dagbjort@thingeyjarsveit.is