Skógardagur Norðurlands 2015 verður haldinn laugardaginn 11. júlí í Vaglaskógi. Dagskráin hefst klukkan 13 og stendur til kl. 17. Vaglaskógur er sögufrægasti skógur Norðurlands og þar er alltaf gaman að koma, sumar sem vetur.
Skógardagur Norðurlands var haldinn í fyrsta sinn í fyrrasumar í Kjarnaskógi en nú er komið að Vaglaskógi og mega gestir eiga von á skemmtilegri dagskrá með fróðleik, sýningum, leikjum og góðgæti. Dagskráin er á þessa leið:
- Gönguferðir um trjásafnið og fræhúsið
- Helstu viðarvinnslutæki til sýnis
- Grisjunarvél sýnd að verki
- Ketilkaffi, lummur, popp og pinnabrauð í boði
- Leikir, bogfimi, skúlptúrar, handverk og fleira
Skógardagur Norðurlands er samvinnuverkefni Skógræktar ríkisins, Norðurlandsskóga, Félags skógarbænda á Norðurlandi, Skógræktarfélags Eyfirðinga, Skógræktarfélags Suður-Þingeyinga, Skógfræðingafélags Íslands, Sólskóga ehf. og Jötunns véla ehf.