Vísnahornið
Kveðskapur Þingeyskra hagyrðinga.
Hlynur og skatan. Geir Garðarson
gættu að því vinur. vart sú gleði fyrnisr.
Þá er skárri skömminni til, og Hlynur svarar: Mér finnst betra meða Geir,
skatan heldur en Hlynur. mig svo lítið girnist.
Sigurður Atlason.
ósköp gott þann fiskinn fá, Eðalskötu, öl úr fant,
og frelsarans minnst í jötu. og Hlynur svarar: er alltaf gott að éta.
En afar lítinn markja má, Það er gott að þú mig kannt,
mun á Hlyn og skötu. þokkalega að meta.
Friðrki Steingrímsson.
Tal um Hlyn er aldrei ýkt Á´onum sést ekkert hik,
ýmislegt má velja og Hlynur svarar: aðra sífellt lastar.
að hann og skatan lykti líkt Úr Mývatnssveitar fúla fnyk,
líklegt mætti telja. Friðrik grjóti kastar.
Finnur Baldursson.
Fleiri vísur frá Finni:
Finnur 2 Vísur um Mývatnssveit.doc
Vísur Finns 1.doc
7. júní 2010 vísa dagsins.
Mývatnssveit af meistara er gerð
mótin geymd í læstum hirslum síðan
ómetanlegt endursöluverð
engu lík er heldur veðurblíðan.
8. júní 2010 vísa dagsins.
Veðurblíðan vefst ei fyrir oss
virkar jafnt á nóttu sem að degi
aldrei spör á obbolítinn koss
okkur gælir við á förnum vegi.
10. júní 2010 Gunnar hjartalæknir spurði
mig í eftirliti hvernig ég hefði haft það.
Ár er nú liðið frá innliti síðasta mínu
ástandið finnst mér þó versnað hafa ei neitt
lifað hef ég í lukkunnar velstandi fínu
lífið gleði, unað og ánægju veitt.
Hallur Birkir Reynisson
Tryggvi Harðarson sveitarstjóri setti fund
Samráðsfund er best að brúka
brúum saman djúpa gjá,
deilum skal með skrafi ljúka
skilning mennta allir fá.
Skólastjóri Stórutjarnaskóla Ólafur Arngrímsson tók til máls
Litli skólinn minn - Ljósavatni hjá
laus við troðninginn - allir fjölgun spá.
Bið ei verður löng - bráðum koma göng
byggð við Fnjóská rís - mikil verður þröng.
Úti sveitar er friður
auður skólans bás.
Ekki leggja mig niður
ekki skell' í lás!
Skólastjóri Litlulaugaskóla Baldur Daníelsson tók til máls
Litli skólinn minn - Laugum stendur á
laus við nema fjöld - húsin eru smá
veitið okkur grið - veljið sveit í frið
virðið Lauga rétt - sem eina þéttbýlið
Úti sveitar er friður
auður skólans bás.
Ekki leggja mig niður
ekki skell' í lás!
Skólastjóri Hafalækjarskóla Harpa Hólmgrímsdóttir tók til máls
Litli skólinn minn - í ljúfum Aðaldal
laus við þrengslin öll - ég veit hvað gera skal
Bráðum fjölgar hér - batna mannlíf fer
því Bakkaálverið - á næstu grösum er
Úti sveitar er friður
auður skóla bás.
Ekki leggja mig niður
ekki skell' í lás!
Oddviti sveitarstjórnar Ólína Arnkelsdóttir tók saman ræður frummælenda og viðbrögð sveitarstjórnar við þeim
Litlir skólar þrír - lifa hræðslu í
látlaust fækkar þar - nemum enn á ný
metum fólksins hug - menntun kemst á flug
myndum nýja nefnd - og sýnum okkar dug
Úti sveitar er friður
auðir skólar þrír.
engan leggja má niður
enginn byggður nýr.
Tryggvi Harðarson tekur aftur til máls eftir almennar umræður
Samráð er ei best að brúka
breikkum með því okkar gjá
orðin ljótu fá að fjúka
flestum óþef leggur frá
burtu svo í reiði rjúka
rífa kjaft og deilum spá
fúlir menn í hornum húka
halda skólum fast sér hjá
viðbjóði í koppinn kúka
og kasta skítnum aðra á.
fundi slitið.
http://www.ismennt.is/not/hbr/

Hlynur Snæbjörnsson
Einu sinni sem oftar voru þeir frændur mínir og nágrannar að tryggja grasvöxt á túnum sínum og þá bjó ég til litla vísu.
Af mykju sveitin ilmar öll
enn þeir skítnum dreifa
Að kasta drullu um víðan völl
er vafasamt að leyfa.
Þessi fær að fljóta með í þeirri von að það skilji hana fáir.
Í netin sín náði mín,
nokkuð fín að framan.
Unaðsskrín lagði á lín,
loforð skín um gaman.
Og fyrir þá sem vilja þekkja mig mæti þeir mér á förnum vegi.
Lokkastuttur limafagur,
ljóðasmiður bestur.
Yndislegur, orðahagur,
öllum betri gestur.

