Landsvirkjun og Myvatn Volcano Park (MVP) hafa undirritað samstarfssamning um tilraunaverkefni í orkutengdri ferðaþjónustu. MVP hyggst skipuleggja ferðir undir nafninu Living on a Volcano og fær til þess aðgengi að vinnslusvæði Landsvirkjunar við Kröflu og Bjarnarflag. Frá þessu segir á vef Landsvirkjunar.
Markmið samstarfssamningsins er að auka verðmætasköpun á grundvelli orkuauðlinda og innviða Landsvirkjunar.
Í ferðunum Living on a Volcano læra gestir um fjölnýtingu eldfjalla á Íslandi, jarðhitann og hinar góðu og slæmu hliðar sambýlis mannsins við eldfjallið. Leiðsögumenn verða jarðfræðingarnir Helgi Arnar Alfreðsson og Júlía Katrín Björke, sem hafa stundað rannsóknir og náttúrueftirlit í Mývatnssveit í eldfjalla- og jarðhitafræðum undanfarin ár.