Jakob Sævar Sigurðsson og Jón Aðalsteinn Hermannsson unnu sigur á skákþingi GM-Hellis á norðursvæði sem lauk í Árbót í Aðaldal í gærkvöld. Jakob Sævar vann öruggan sigur með 5,5 vinninga af 6 mögulegum í eldri flokki. Tómas Veigar Sigurðarson varð í öðru sæti með 4,5 vinninga og Smári Sigurðsson og Sigurður G Daníelsson urðu jafnir í þriðja sæti með fjóra vinninga. Á heimasíðu GM-Hellis má sjá öll úrslit úr mótinu.

Jón Aðalsteinn Hermannsson vann sigur í flokki 16 ára og yngri með 2,5 vinninga, Bjarni Jón Kristjánsson varð annar með 2 vinninga og Jakub Piotr Statkiewicz varð þriðji með 1,5 vinninga.
