Gabríella Sól Magnúsdóttir er sigurvegari Tónkvíslarinnar 2015, söngvakeppni Framhaldsskólans á Laugum, sem lauk nú í kvöld. Hún söng lagið “Skyfall” (Adele) með miklum glæsibrag.

Alexsandra Dögg Einarsdóttir, Rúnar Þór Brynjarsson, Ágúst Þór Brynjarsson og Héðinn Mari Garðarsson unnu grunnskólakeppnina, með laginu “Safe and sound”
Friðrik Dór var leynigestur kvöldsins.
Nánar verður fjallað um Tónkvíslina hér á 641.is á morgun.

