Sævar Helgi Bragason, ristjóri Stjörnufræðivefsins, fjallar um leiðangra Curiosity og Voyager á fyrirlestri sem haldin er á vegum Könnunarsögusafnsins á Húsavík Cape Hotel í dag. Við undirbúning leiðangurs Curiosity til Mars komu vísindamenn NASA hingað í Þingeyjarsýslur til að kanna hliðstæður umhverfis hér og á Mars.

Fyrirlesturinn hefst kl. 13.00 sunnudaginn 2. febrúar og er í sal Húsavík Cape Hotel að Laugarbrekku 26.
Aðgangur er ókeypis.