Dagur harmonikunnar var haldinn á Breiðumýri laugardaginn 4.maí og var þar hátíðarbragur því þar spiluðu ungir harmonikuleikarar við mjög góðar undirtektir gesta. Að þessu sinni komu nemendurnir frá Hafralækjarskóla, Öxarfjarðarskóla og frá Tónlistarskóla Húsavíkur og spiluðu þeir bæði einir sér og með kennurum sínum.

Frá Hafralækjarskóla kom Hermann Hólmgeirsson og frá Öxarfjarðarskóla komu systkinin Margrét Eva og Jón Alexander, en frá Húsavík komu Anna Eir Pálsdóttir og Kristinn Ásbjörnsson.
Dagskráin hófst kl. 14 með því að Sigurður Hallmarsson spilaði þrjú lög, en síðan spilaði unga fólkið hvert af öðru og hlaut það mjög mikið klapp fyrir góðan harmonikuleik. Þeim til aðstoðar voru tónlistarkennararnir Árni Sigurbjarnarson og Knútur Emil Jónasson. Að því loknu spiluðu nokkrir reyndari harmonikuleikarar, en síðan var boðið upp á veislukaffi. Undir borðum fengu krakkarnir viðurkenningarskjöl frá Harmonikufélagi Þingeyinga og afhentu þeir Jón Helgi Jóhannsson og Þorgrímur Björnsson, stjórnarmenn í HÞ, skjölin og þökkuðu þessu unga hæfileikafólki fyrir frábært framlag á degi harmonikunnar.
Eftir kaffihlé var svo spilað áfram og voru allir sammála um að dagurinn hefði verið skemmtilegur og það hefði verið sérlega ánægjulegt að sjá unga fólkið spila.



