Færslur: 2012 Febrúar
29.02.2012 12:34
Húsnæðismál leikskólans Barnaborgar.

Barnaborg í Aðaldal.
Í bréfinu kemur fram að núverandi húsnæði leikskólans rúmi ekki lengur börnin í leikskólanum. Bréfritarar leggja fram þrjár leiðir til þess að leysa húsnæðisvanda Barnarborgar.
1. Að hafa leikskólann áfram í Barnaborg.
2. Að hafa leikskólann áfram í Barnaborg en leigja einbýlishúsið Víðigerði svo hægt sé að skipta upp hópum hluta úr degi.
3. Að leggja af leikskóla í núverandi húsnæði og flytja starfsemina í húsnæði Hafralækjarskóla.

Barnaborg í Aðaldal.
Af þessum þremur kostum telur fræðslunefnd þriðja kostinn ákjósalegastan og leggur til að hann verði skoðaður nánar. Tillögur verði gerðar að nokkrum lausnum að staðsetningu innanhús í samráði við skólastjóra Hafralækjarskóla og deildarstjóra Barnaborgar.
Kostnaður vegna nauðsynlegra breytinga verði kannaður þegar tillögur liggja fyrir.
Í
dag eru 22 börn á leikskólanum Barnaborg og í vor útskrifast þrjú börn.
Nú þegar hefur verið sótt um leikskólavist fyrir tvö börn og mögulega
munu berast fleiri umsóknir.
Sjá alla fundargerðina hér
28.02.2012 20:38
Hafdísi afhentir farandbikarar HSÞ í dag.

Hafdís Sigurðardóttir með verðlunin í Stórutjarnaskóla í dag.
Það var Birna Davíðsdóttir úr stjórn HSÞ sem afhenti Hafdís verðlaunin, en Hafdís hafði ekki tök á því að taka við þeim á ársþingi HSÞ sem var haldið á Raufarhöfn sl. sunnudag.
Krakkarnir sem æfa frjálsar íþróttir undir stjórn Hafdísar fögnuðu Hafdísi vel og innilega og klöppuðu mikið fyrir henni og skoðuðu bikarana og fengu að lyfta þeim.

Skemmtileg stund og án efa hvetjandi fyrir framtíðar íþróttastjörnur.
Hafdís er flott fyrirmynd.
Myndir: Jónas Reynir Helgason.
28.02.2012 10:20
Meistarmót 11-14 ára. Atli Barkarson Íslandsmeistari.
Meistaramót 11-14 ára fór fram í Laugardalshöllinni um helgina. Þar
átti HSÞ 12 keppendur. Það voru þau Bjargey og Arna Dröfn sem kepptu í
flokki 14 ára, Hlynur, Hafdís Dröfn, Hulda Ösp og Dagný sem kepptu í
flokki 13 ára. Óskar, Unnar, Eyþór Kári, Arnhildur og Freyja Sól sem
kepptu í flokki 12 ára og svo Atli í flokki 11 ára. Mörg voru að fara á
sín fyrstu stórmót. Árangur þeirra var með miklum ágætum og varð HSÞ
liðið í 11 sæti af 19 liðum í heildarstigakeppninni með 100,3 stig.
Þau
komu heim með 1 gull, 4 silfur og 2 brons.
Atli Barkarson Íslandsmethafi á verðlaunapalli, með gull fyrir hástökk.
Mynd: Börkur Emilsson

Atli varð Íslandsmeistari í hástökki með stökk upp á 1,31 m og varð í öðru sæti í 60 m hlaupi, kúluvarpi og í langstökki en þar bætti hann 25 ára gamalt héraðsmet Skarphéðins Ingasonar um sentimeter 4,32. Til hamingju með árangurinn Atli.

Hafdís Dröfn varð í þriðja sæti í 800 m hlaupi og varð hársbreidd frá nýju héraðsmeti.
Boðhlaupssveit 12 ára pilta, Eyþór, Unnar, Óskar og Atli, urðu í 2 sæti í 4x200 m hlaupi á nýju héraðsmeti 2:10,55.

Boðhlaupssveit stúlkna 13 ára, Dagný, Hulda, Hafdís og Arnhildur urðu í 3 sæti og settu nýtt héraðsmet á tímanum 2:02,03

Hinir keppendurnir bættu margir hverjir sinn eigin árangur.
Frjálsíþróttasíða HSÞ hér
Myndir: Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir.
Sjá fleiri myndir hér
27.02.2012 10:43
4. Fundargerð starfshóps um sameiningu Hafralækjarskóla og Litlulaugaskóla.
1. Fundargerð síðasta fundar:
Fundargerð frá 31. janúar 2012 lögð fram og undirrituð.
2. Álit frá lögfræðingum:
Farið yfir svör frá lögfræðingum hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga og Acta lögmannsstofu við spurningum um réttindi og
skyldur vegna sameiningar.
3. Tillögur til sveitarstjórnar:
Gerð drög að tillögum til sveitarstjórnar um framkvæmd sameiningar og
stjórnskipulag nýrrar stofnunar. Ákveðið að vinna nánar fyrir næsta
fund.
Fundi slitið kl. 18:40. Margrét Bjarnadóttir ritaði fundargerð.
Fundargerð sveitarstjónar Þingeyjarsveitar má skoða hér
27.02.2012 10:00
Ársþing HSÞ 2012. Fær HSÞ Landsmót 50+ 2014 ?

Þingfulltrúarnir fóru í skoðunarferð í Heimskautagerðið á Raufarhöfn sem er í uppbyggingu.
Stefán Jónasson Ungmennafélagi Tjörnesingar var sæmdur silfurmerki ÍSÍ fyrir vel unnin störf í gegnum tíðina og Birna Björnsdóttir Ungmennafélaginu Austra var sæmd starfsmerki UMFÍ, einnig fyrir vel unnin störf.

Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ sæmir Stefán Jónasson silfurmerki ÍSÍ.

Haukur Valtýsson varaformaður UMFÍ sæmir Birnu Björnsdóttur starfsmerki UMFÍ.

Hluti þingfulltrúa á ársþinginu í Hnitbjörgum á Raufarhöfn.
Ný stjórn HSÞ var kjörin á þinginu, en í henni sitja, Jóhanna Kristjánsdóttir Geisla formaður, Halldóra Gunnarsdóttir, UMF Langnesinga, Hermann Aðalsteinsson skákfélaginu Goðanum, Birna Davíðsdóttir Bjarma, Jóakim Júlíusson Völsungi, Pétur Þórir Gunnarsson UMF Mývetningi og Olga Friðriksdóttir UMF Austra.
26.02.2012 22:08
Landbúnaðarverðlaunin í Skarðaborg.

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, Sigurður Á. Þórarinsson og Helga Helgadóttir bændur í Skarðaborg, Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Katrín H. Andrésdóttir og Sveinn Ingvarsson bændur í Reykjahlíð og Haraldur Benediktsson formaður BÍ. Mynd: Hörður Kristjánsson
Skarðaborg í Reykjahverfi.
Skarðaborg er nýbýli byggt út úr landi Skarða í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1949 en úthagi er óskiptur með jörðunum. Skörð er landsnámsjörð og þar bjó m.a. Ófeigur Járngerðarson sem sagður er heygður í Ófeigshól. Bæirnir Skörð og Skarðaborg standa skammt hvor frá öðrum ofan þjóðvegarins sunnan undir Skarðahálsi og horfir land þar móti suðvestri.
Frá árinu 1949 voru eigendur og ábúendur á Skarðaborg Þórarinn R. Jónsson frá Valþjófsstað í Fljótsdal og Sigurveig Kristjánsdóttir frá Klambraseli í Aðaldal og eignuðust þau 5 börn. Sigurður Ágúst Þórarinsson, yngsti sonur þeirra hjóna tók síðan við búi foreldra sinna ásamt konu sinni, Helgu Helgadóttur frá Húsavík. Sigurður og Helga eiga 4 syni, þá Jón Ágúst, sem lokið hefur B.Sc prófi í Hátækniverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Sigþór sem hefur lagt stund á nám í kjötiðn og vinnur sem kjötiðnaðarmaður í Norðlenska á Húsavík, Bjarka sem er nemi í trésmíði við Verkmenntaskólann á Akureyri og Helgi Maríus klárar 7 bekk í Hafralækjarskóla í vor. Allir hafa þeir svo verið viðriðnir við búskapinn með einum eða öðrum hætti.
Frá árinu 1975 hefur eingöngu verið starfræktur sauðfjárbúskapur á Skarðaborg en þar áður var einnig kúabúskapur á búinu. Jafnt og þétt hefur sauðfjárstofninum síðan fjölgað með árunum og í dag losar hann um 800 vetrarfóðraðar kindur. Mikil áhersla hefur verið lögð á að kynbæta stofninn frá upphafi en síðustu árin hefur markviss árangur náðst í ræktun.
Þann árangur má þakka góðri forskrift sem reynt hefur verið að fylgja eftir í hvívetna. Hún er sú að rækta alltaf mest undan þeim einstaklingum sem standa sig best hverju sinni þótt ungir séu, halda stofninum fjölbreyttum hvað ætterni varðar og fá álit annarra aðila við val á líffé.
Ásamt því að vera í Sauðfjárrækt hafa fyrri og núverandi ábúendur á Skarðaborg tekið virkan þátt í því að græða upp land í um 30 ár. Allt frá árinu 1982 hafa ábúendur, í samstarfi við Landgræðslu Ríkisins og átakið "bændur græða landið", grætt upp mela og rofabörð á afrétt sinni á Reykjaheiði. Til þess hafa þau notað fræ, áburð og hey sem tilfellur frá búskapnum með góðum árangri.
Vorið 2010 létu síðan hjónin Sigurður og Helga draum sinn rætast - að koma sér upp sinni eigin heimavinnslu og geta þar með útbúið og selt sínar eigin afurðir beint af búinu. Í lok sauðburðar var hafist handa við að gera upp gamla fjósið sem hafði rúmum 30 árum áður hýst kýrnar á bænum. Eins og ætla mátti var mikið að gera þetta sumarið og var gripið í hamarinn og sögina milli þess sem rigndi eða meðan beðið var eftir því að heyið þornaði í flekknum. Eftir fyrstu göngur var heimavinnslan síðan tekin í notkun.
Fyrstu tvö árin hefur mest verið búnar til vörur úr ær og lambakjöti. Þar má helst nefna hangikjöt, lundir, fille, hakk og bjúgu. Markmiðið er svo að auka við farmleiðsluna með fleiri vöruflokkum í náinni framtíð. Í dag er Skarðaborg í samtökunum Beint frá Býli og hefur verið í samstarfi við Þingeyska matarbúrið.
Bóndi.is


