27.01.2012 12:14
Tónlist Jóns Hlöðvers í fókus.
Tónverkið Draumur Manúelu, eftir Jón Hlöðver Áskelsson, verður flutt af hinum snjalla flautuleikara, Áshildi Haraldsdóttur og Íslenska flautukórnum á tónleikum Áshildar í Hörpu kl. 22 í kvöld, föstudagskvöld. Tónleikarnir verða teknir upp og verður útvarpað á Rás 1, í þættinum Ópus kl. 21.10 n.k. mánudagskvöld. Þetta verk er nú flutt í þriðja skipti af Áshildi og átta manna flautukór, eða Íslenska flautukórnum. Verkið var frumflutt af sömu listamönnum 16. júlí sl. í Skálholti og hefur hrifið marga áheyrendur fram til þessa.

Jón Hlöðver Áskelsson og Víkingur Heiðar Ólafsson á sviðinu í Hofi. mynd: Kristján Vikudagur.
Talsvert er nú umleikis hjá Jóni Hlöðver, því að sunnudaginn 5. febrúar nk. mun Víkingur Heiðar Ólafsson frumflytja sex píanólög eftir hann í menningarhúsinu Hofi, á fyrstu einleikspíanótónleikum sem þar fara fram. Á efnisskránni verða einnig m.a. Pathetique sónata Beethovens, sónata í a-moll eftir Mozart, einnig íslenskar söngperlur í þeim hrífandi búningi sem Víkingur Heiðar sníður þeim.

